Bolabítur

Have fun

28.09.2008 04:34:24 / bolabiturinn

Þú ert það sjálfur!!

Já góóóða kvöldið ! :)
Ég alltaf jafn sorgleg að blogga á næturnar þegar allir eru að koma heim af djamminu, nema Karo.. Hún var á barvakt.. :lol: Þvílíkt og annað eins hvað fullt fólk getur farið ógeðslega í taugarnar á mér ...
og löggan á Húsavík.. Hún mætti fá 12 punkta fyrir ógeðsleg heit!!!!!!! AAARG:^)

jæja.. það er búið að vera stuð á Húsavíkinni .. sláturhúsaliðið að gera góða hluti og enginn týmir að missa af djammi sökum þess:D Sem er mjög gaman ;) Elska þegar þessi dauði bær lifnar örlítið við :)

Já Karo er búin að halda örfá teiti í nýju íbúðinni, hvort sem 2 manna partý kallast partý eða ekki ;) Haha:P En það er allavega gaman:)

Já ég ... =kúka á mig í skóla... :S en who cares :p

jæja ég held ég ætli að segja þetta gott í bili ...
ætla að skella hér nokkrum myndum úr partýum í Sólbrekku 5 :)


Harpa mín og ég .. Ég líka helluð á öllum myndunum.. er það samt ekki ;) 

sætu sætu .. rebekka og Harpa :*

Begga, Unnur og Karo ;*

Sætu stelpurnar mínar !! 

Góð mynd þessi ;)

Jja ... segjum þetta gott

ykkar Karolína


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 02:28:39 / bolabiturinn

hot and cold.. :p

vúhúúúú... Karo er komin með netið ;) ég get bloggað:D vei!
Já hún Karo er flutt... það er æðislegt!!! Æðisleg íbúð og mér líður geðveikt vel hér ;) hehe... utan við að eg er farin á hausinn:p aaa... það reddast ;)

Skólinn er  byrjaður.. ég er í 3 fokking söguáföngum, öllum með prófi.. fokkit.. ég vona bara að ég slefi þá er ég búin með skólann um áramótin ;)
þá stefnir mín á vinnuna og svo ætla ég að fara héðan frá þessum ógeðslega bæ og viðbjóðslega landi... vá hvað ég er jákvæð.. ha? er ég Begga ? ;)
Var að koma heim af djamminu, fór heim snemma eins og þið sjáið.. hrikalega þreytt! innflutningspartý hjá mér og allt að gerast ;) ógílega gaman :)

Ég hata skólann..
elska samt að vera ALLTAF með vinkonum mínum!!!!!!:*
þær eru bestar ;*

jæja ... ég ætla að fara að sofa.. ég verð dulegur bloggari i vetur.. ég lofa ;)

Kveðja
Karolína

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.08.2008 19:13:44 / bolabiturinn

Danmark

Já sæll...
ég er ér stödd í Danmörku og það er rosa stuð hér...
Vááá... mér langaði samt að vera að koma heim núna frá eyjum en ég hafði gott af þessari slökun hér...
Ég var lasin hér fyrstu 3 dagana með hita og hálsbólgu og ógeð en er búin að ná mér úr því öllu...
Er búin að fara að versla einu sinni og náði að versla eitthvað smávegis, svo erum við búin að fara með litlu sætu frændu mína í bambagarð, skoða sumarhús drottningarinnar og svo bara liggja í leti hérna heima ... er ekki búin að stíga út úr húsi í dag...:)
Á laugardaginn fór ég á djammið með fólki sem ég hafði aldrei á minni ævi séð eða heyrt um ... en ákvað að skella mér og það var geðveikt gaman..:p Fórum á stað sem heitir einhverju dönsku ógeðslegu nafni.. og þar voru einhver slagsmál og kókaín útum allt og læti þannig að við fórum heim til gauranna... vorum þar 4 að drekka og hlusta á tónlist.. kl.hálf 3 byrjaði mín svo að hringja á taxa og þeir lofuðu allsvakalega upp í ermina á sér.. þegar kl.var orðin rúmlega 5 og enginn af 4 töxunum komnir ákvað ég að labba ein niðrí bæ og hringja í Bertu og láta hana ná í mig .. þvílíkt og annað eins ;) heheh... en þetta reddaðist:D
Svo á morgun ætla ég að reyna að versla eitthvað hérna í Horsens og svo á miðvikudaginn er ég að fara í tívolígarð sem heitir Djurs sommerland með Einari..:) á fimmtudaginn ætla ég að reyna að fara aðeins fyrr til Köben (tekur tæpa 4 tíma með lest) til að geta kíkt aðeins á strikið..:)
svo kem ég bara til Húsavíkur á föstudag.. veit reyndar ekkert hvar ég á að gista á fimmtudeginum ef Erling minn verður farinn til Húsó..:S en það reddast.. Svo er það bara vinna alla fiskidagahelgina:(

skólinn er svo að byrja... ohh.... nenni ekki! En við erum allavega að fara að busa krakkana sem eru að byrja... sem m.a.er systir mín;) það verður snilld.. þar að segja ef þessi blessaði nýji skólastjóri er ekki svona ógeðslegur eins og sá gamli..:) En jamm og jæja.. held eg fari að segja þetta gott..
bið kærlega að heilsa heim!!:D

Ykkar Karolína

Ég að gefa bamba að éta.. skíthrædd við þetta;)

Ég og Hemmi minn úti að borða á Bone's:D

Raggi með Sigga litla.. ;*

Berta, ég og Hemmi í drollu garðinum:p

Dónabarn.. Aha...:p





» 8 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 13:20:37 / bolabiturinn

I know I know I know

Váááá... það er langt síðan síðast.. ég veit.. ég bara er ekki með tölvu því hún er ónýt og þá nýti ég mér fyrsta tækifærið þegar ég kem hérna suður;) Hehe..

sumarið mitt er búið að vera frábært og er ekkert að versna...
Ég er búin að gera svo geðveikt mikið .. Ég er búin að fara nokkrum sinnum til Akureyrar.. Á sálina, Mercedes club og fleira.. svo er eg buin að fara á Káta daga á Þórshöfn sem var bara Snilld.. :D þar voru Dalton og svo Sigga Beintens að troða upp:p
Mærudagarnir voru að klárast og var líka geðveikt gaman þá.. Veðurguðirnir, SÓS og fleiri góður létu sig ekki vanta og héldu stemmaranum uppi:D hehe:D Einar Þór og Gísli létu sig ekki heldur vanta og kíktu á gamla bekkjarfélaga.. hef nú ekki séð þá í háa herrans tíð:)

núna er ég fyrir sunnan heima hjá Erling og Reyni.. var að vakna:) þeir eru báðir að vinna og ég er bara að bíða;) Er að fara að setja Prison í og glápa :P svo á morgun er ferðinni heitið til Danmerkur þar sem ég ætla að hitta ættingja mína sem ég er búin að sakna svooo..:lol: ..gott líka að geta slappað aðeins af.. er búin á því eftir allt þetta djamm .. haha;)

æji vá.. Ég ætla að segja þetta gott.. vona að þið séuð ekki búin að gleyma síðunni minni:)

Karolína


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 04:06:48 / bolabiturinn

lost

Já sæll.. er ég latur bloggari?
okei .. ég er orðin 19 ára.. hrikalega ómerkilegur aldur..

Hélt upp á afmælið mitt.. rosa stelpu partý hér :D

Fór á bíladaga um helgina.. sjitt hvað það var gaman .. David Guetta hvað ? :lol:
Fór á laugardag með Heiðrúnu og Dóru og gistum í tjaldi .. æðislegt:D
nema ..Vaknaði daginn eftir.. Tognuð!! :( Svo þurfti min að fara á hækjur, tölum ekki meir um það .. En Karo lét það ekki stoppa sig og fór aftur á mánudag.. á hækjunum.. geri aðrir betur:D Fór á skímó og það var geðveikt :D
Hef ekki skemmt mér svona vel svoooo lengi:p

Ohh.. ég get ekki sofnað .. Hata það :s

Aníta elsku besta sysir mín er að koma á föstudag.. get ekki beðið :D
Hanna er lika alveg að fara að koma .. :D:D

segi þetta gott
Karolína

We are so young
our lives have just begun
but already we're considering
escape from this world




» 5 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 13:32:09 / bolabiturinn

Úlallala

Sumarið er riðið í garð.. það er engin spurning.. Þvílík dásemd :)
Jæja.. vinnan er byrjuð á fullt :) uu... já.. Ég á aðeins eina önn eftir í skólanum:D Þá er ég búin.. Veit ekkert hvað mig langar að gera, auper, skemmtiferðaskip, eða bara flytja eitthvert og hafa gaman:D

Jæja.. Elís Már er fluttur til Færeyja.. Guð hvað það er skrítið! :(
Ég bý hjá mömmu eins og er þangað til við seljum íbúðina og þá ætla ég að leigja mér bara eitthvað minna:D 

ég er að fara til Danmerkur.. ein og yfirgefin.. Sem verður frábært verkefni ;) Hlakka til..:D

Æji ég segi þetta gott í bili .. Uuu... ætti ég ekki að vera úti að sóla mig eða? Hélt það..

Karolína :D 



Hanna er alveg að koma heim:D jeij...... og ég er orðin dökkhærð aftur:$

» 8 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 22:42:46 / bolabiturinn

Af hverju ekki ég?

Já gott og blessað kvöld..:)

Búin að vera kreisei í prófum og ég er búin að ná öllu.. á reynda eftir að fá úr enskunni sem ég var í í morgun..
Þessi vika er búin að vera ógeðsleg.. erfið.. og leiðinleg!!

Margt búið að gerast í mínu lífi undafarið, ég er alltaf á Ak.hjá doksum..:) Sem er bara fínt.. Harpa kom með mér seinast sem var mjög gott!! Hún er BEST;*

Ég er löt.. ógeðslega löt.. kalla þetta íslenska leti.. eða bara leti! okei.
Talandi um leti.. hérna í den, ekki fyrir svo löngu voru ekki til fjarsteringar á sjónvörpum, þá þurfti fólk að standa upp og skipta.. hvað gerði maður í dag.. frekar mundi maður horfa á Agla Gull á skjáeinum í stað þess að standa upp og skipta. þetta kalla ég leti..

Ég á eina önn eftir í skólanum, er að reyna að finna mér áfanga til að fara í í sumar til að ég þurfi ekki að fara í þrjá áfanga í sögu á næstu önn.. Ðets ameising je:)

Á mánudaginn sungum við kórstelpurnar í jarðaför hjá henni Krissu minni, sem lést um daginn.. votta ég öllum hennar nánastu mína innstu samúð;*
Það var erfitt en þetta er bara verkefni sem ég hef nú staðist :$:d

jæja ég segi þetta gott í bili

vi ses
Farvel
Karolína 



» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 18:59:02 / bolabiturinn

I need some sleep.

I need some sleep.
I can’t go on like this.
I try counting sheep,
But there’s one I always miss.

Everyone says I’m getting down too low
Everyone says: "You just gotta let it go"
"You just gotta let it go"
I just gotta let it go

I need some sleep
time to put the old horse down
I’m in too deep
and the wheels keep spinning round

Everyone says I’m getting down too low
Everyone says: "You just gotta let it go"
"You just gotta let it go"
I just gotta let it go

You just gotta let it go
You just gotta let it go
You just gotta let it go

"EELS"

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 02:15:37 / bolabiturinn

Þórshöfn

stundum kemur upp í hausinn á mér Þórshöfn.. Afhverju Þórshöfn, jú því ég sakna þess stundum.. Það eru reyndar nánast allir minir "vinir" fluttir þaðan en það er gaman að eiga minningar síðan þá..

Ég man.. þegar ég og Arnþór vorum alltaf að renna okkur á hjólabretti á rassinum niður Langanesveginn þar sem við bjuggum
Ég man.. þegar ég og Hildur vorum alltaf í fjörunni að týna "bobba"
Ég man.. þegar Dóri pabbi Hennýjar bauð okkur út að borða og við fórum í meme peysur..uss.. gellurnar þar á ferð:)
Ég man.. þegar ég og Jara vorum alltaf í pleimó
Ég man.. þegar ég, Arri, Stebbi, Henný, Jara, Hildur, Sandra, Petra og fleiri vorum alltaf í leikjum á leikskólanum.
Ég man.. þegar ég var að labba heim úr skólanum og ég var með frunsu (ha? Karo með frunsu.. getur ekki verið) og einhverjar eldri stelpur sögðu að maður mundi bara fá frunsu ef maður mundi kyssa strák og ég fékk sjokk og vildi ekki fara í skólann vegna þess..:( Helvítis mellur
Ég man.. þegar Nikki, bróðir Henný dó :(
Ég man.. þegar ég datt af pallinum heima hjá mér og missti andann og dó næstum:lol:
Ég man.. þegar ég og Henný fórum alltaf upp í hesthús að kíkja á hestana, og ég "átti" eina með henni sem hét Stína stuð, og einu sinni þegar við fórum voru kanínurnar sem voru þarna líka, sem hún og Tinna systir hennar áttu voru dánar:(
Ég man.. þegar ég og Arnþór fundum mús úti, tókum hana að okkur sem gæludýr, settum hana í þvottakörfu og gáfum henni ost, hún lifði í 2 daga:(
Ég man.. þegar ég var einu sinni að hjóla til Hildar og gamall maður, sem var í hjólastól með engar lappir og átti heima á móti sjoppunni stoppaði mig og bað mig að kaupa handa sér kók og ég mátti eiga afganginn og þegar ég kom heim og sagði mömmu frá þessu var hún ekki sátt og sagði að ég mætti aldrei aftur kaupa handa honum kók, og aldrei aftur stoppa hjá honum ein.. lalala:lol:
Ég man.. þegar allir eldri krakkarnir voru að hoppa af skólaþakinu á stóra dýnu og ég mátti ekki vera með :frown:

já svona get ég lengi haldið áfram...
En hvar eru allir?? jú Arri á heima í Kanada, er búin að heimsækja hann einu sinni, Henný á heima á Akureyri, hitti hana stundum, Jara á líka heima á Akureyri, hitti hana stundum, Petra á heima á Akureyri, búin að hitta hana einu sinni.. Stebbi býr enn á Þórshöfn, búin að hitta hann nokkrum sinnum... en hvar eru þið hin??

Hehe.. en já .. tilgangslaust blogg.. langaði bara svo að skrifa hugsanir mínar hérna :)
Annars er allt gott að frétta hjá mér bara sko :)
Var á árshátíð N1 um helgina, rosalega flott.. selma og Hanna veislustjórar, Bubbi kom og spilaði og söng, Magni, Hreimur, söngvarinn í Pöpunum.. þetta var rosa flott
gistum á Hilton hótelinu :) Veldi á þessu fyrirtæki..

set myndir við tækifæri
takk fyrir að lesa þið sem nenntuð:)

Hilsen

Karolína


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 23:10:48 / bolabiturinn

Vá.. tíminn líður.....

Það hefur birt yfir.. birt yfir öllu, nema mér ..
Það styttist í lokaprófin, sumarið, endalausa vinnu, árshátíð N1 og margt fleira.. eina sem ég hugsa um eru lokaprófin.. er ekki alveg búin að standa mig og er ekki viss um að ég nái öllu.. og ég sem ætlaði að klára næstu jól..:$

jæja.. ég er byrjuð á fullt í ræktinni.. mjög gaman..:)

Mamma og pabbi, Aníta og Ágúst voru að koma frá Kanada áðan.. ég fékk fullt af fötum, æðislegt:) Mamma reyndar hélt að stelpan sín væri svona 20 kg.léttari en hún er þar sem allt var í xs eða eitthvað..

Nala, sæta kisan sem ég fann úti, tók að mér og svo fundum við foreldra hennar
þetta er sæta kisan sem ég fann úti, tók hana að mér og fann svo foreldra hennar..


þetta er hinn eini sanni Kusi, sem ég elska meira en allt:*

ástæðan fyrir því að hann heitir Kusi, Elís fannst hann eins og belja!!:p

Ég fyrir árshátíð FSH 2008
Ég fyrir Þorrablótið
Ég fyrir þorrablót N1 2008
Ljóti toppurinn minn
Ég með öglí toppinn sem ég hata..

og að lokum..Elís að fá sér bjór!!!


Jæja.. Ég ætlaði bara að kasta inn einu bloggi því ég lofaði að setja myndir,. hér eru nokkrar.. ég fer að vinna betur í þessu sem fyrst :D  

Ví ses..
Karolína


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 18:12:06 / bolabiturinn

Alltof mikið

ohh.. það er alltof mikið að gera?
er enginn svona busy eins og ég ??
Samt er ég aldrei að gera neitt,, eða jú vinna og skóli og margt fleira :) :s

En já ég er komin með kisa.. Hann heitir Kusi .. Hann er sætastur ! :D
Set myndir af honum sem fyrst..

En ég ákvað bara að skella inn eina litlu bloggi svona fyrir þá sem fylgjast enn með mér :)

Ég fór á árshátíð á föstudaginn , það var fínt.. m´tti reyndar klukkutíma of seint og missti þar af leiðandi af mynatökunni og því öllu .. mér langaði bara ekkert að fara.. En ég hefði séð eftir því ef ég hefði ekki farið svo ég ákvað að hlíða kallinum mínum!! ;*

Set myndir af því líka inn sem fyrst.. þegar ég hef tíma :)

Hilsen :)

 
Ég og Elís að syngja saman ;*

Karolína

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 22:55:40 / bolabiturinn

Pollock.. :)

Lítið sem ekkert á mína daga drifið, enda hef ég ekkert bloggað því ekkert að segja :)

En ég og Elís minn fórum að fljúga um daginn og það var rosalega gaman. Ég ekki hrædd:p
Stelpan... ;)

Þorrablót á morgun. vona að það verði gaman. Hilma kemur samt ekki sem er frekar fúlt.. En Anna kemur, ég styð það :D

Ég var að mála í dag. Listaverk sem á að vera í stofunni okkar. Elís var illa stoltur af stelpunni sinni!! :) Ógeðslega flott, svona eins og séð sé á tunglið eða eitthvað, eða ég segi það :)
Sýndi smá Jacson Pollock stíl sem er bara flott enda frábær listamaður þar á ferð :) !!
Verðið bara að koma og sjá :p


Hér eru myndir eftir kappann.. Hann gerir geggjaðar myndir, svona slettur sem ég fíla. 

Ég og Harpa máluðum líka skenk sem hún ætlar að setja í íbúðina sína, klikkaður:D

En jæja, best að fara að knúsa Elís minn og horfa á Pressu :D

Hilsen

Karolína

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 16:44:33 / bolabiturinn

Fly on the wings of love...

Jæja... Guten Tag

Ég afsaka bloggleysi mitt eins og oft áður ..

Akkurat núna er ég í ísl 633/barnabókmenntir.. Ekki eins skemmtilegt og ég vonaði en þetta er nú bara annar tíminn .. Er í þessu til hálf 7 og fer þá beint að vinna til 10 .. vúhú :P

Jæja .. Styttist í þorrablót N1.. 2 febrúar og Hilma æði kemur :D Jeij!!

Heiðrún og Anna Júlía sviku lit og ætla ekki að mæta.. :)

Já skólinn er byrjaður á fullt, ég er ekki sú allra duglegasta en ég mun gera mitt besta :D

Elís ástin mín er búin með einkaflugmanninn.. Til hamingju með það !! ;*
Við pöntuðum okkur tíma næstu helgi og erum að fara að fljúga um heiðskýr loftin .. Eins gott að það verði gott veður ! :D
Hlakka svo ógeðslega til þrátt fyrir ógeðslega flughræðslu :D

Flugparið :D

Jæja best að henda sér á leikjanet svo þessi tími líði nú eitthvað :)

Ykkar

Karolína

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 00:25:56 / bolabiturinn

Spurningalisti

Halló

stal hérna spurningalista af síðunni hennar Unnar:D
Ákvað að henda þessu hérna inn því ég hafði ekkert að segja í blogginu, og já Birgó.. myndirnar eru alvega að koma inn , seinvirkt picturetrail... þurrkast alltaf allt út;) Ég fer að drífa mig að þessu :)



1.Með hverjum verður næsta laugardagskvöld?
-Vonandi bara með Elísi mínum!!

2. Hvað vakti þig núna í morgun?
- Elís:*

3. Ef að þú myndir taka eiturlyfjatest núna, myndiru standast það?
- uuu... já

4. Verður annaðkvöld gott kvöld?
- Já það efast ég ekki um..

5. kysstiru einhvern eða knúsaðir í dag?
- Já.. Elís minn!!

6. Hver var seinasta manneskja sem að þú varst í bíl með?
- Harpa Sóley.. í mínum bíl. annars Elís.

7. Hvað áttu marga myspace síður?
- held að ein sé nóg..

8. Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú vaknaðir í morgun?
- Ohhh... skóli!!

9. Líkar þér vel við skólann þinn?
- Nei ekki neitt voðalega..

10. Myndiru taka bullet fyrir hvern sem er ?
- Nei

11. Hvað myndiru vilja búa?
- Sólarlandi

12. Virka sambönd með mikilli fjarlægð?
- Ef parið er virkilega ástfangið er það kannski í lagi í einhvern tíma en svo held að það sé lítill sjéns á því :p

13. Hvað viltu vera þegar þú verður orðin eldri?
-Móðir og eiginkona í góðri vinnu.

14. Hvað sérðu þig í lífinu eftur 5 ár?
- Með litla fjölskyldu... kannski í Flórída, hver veit ? ;)

16. Hvar myndiru vilja vera núna?
- Í Færeyjum með Elís

17. Hver var seinasta manneskjan sem að sendi þér myspace comment?
- Anna Jóna held ég, er samt ekki búin að kíkja á dágóðan tíma

18. Hve oft ferðu inná myspaceið þitt?
- Ekkert alltof oft..

19. Viltu frekar tala í símann heldur en á msn ?
- Helst já...

20. Hve mörgun bílslysum hefuru lent í?
- Veit ekki hvort það sé bílslys.. það var einu sinni klesst aftan á mig og Elís á súbbanum, og bíllinn gjöreyðilagðist.. Held það sé það eina.. það slasaðist samt enginn en ég nánast þurfti áfallahjálp:p

21. Hlustaru á tónlist á hverjum degi?
-jebb..

22. Ferðu ennþá í trick or treat
- Hef aldrei gert það...

23. Hvað borðaðiru seinast?
- Samloku með grænmeti

24. Skrifaru hratt á lyklaborð?
- Já já allt í lagi.. .

25. Hve marga hraðaakstrasektir hefuru fengið?
-ENGA:D

26. Hvað gerðiru í kvöld?
- kvöldið er bara að byrja. Ætla aðeins að hitta Ellen, vera svo með Elís og byrja á ritgerð ...

27. Ef að þú hefðir einn heilan dag bara útaf fyrir þig, hvað myndiru gera?
- Örugglega bara sofa..

28. Er eitthvað að angra þig?
- já já það er eitthvað ...

29. Saknaru einhvers?
- Já

30. Hvað viltu vera að gera núna?
- Kúra eða sofa...

31.Ertu að hluta á tónlist núna?
- já Elís er að tralla á gítarinn við hlið mér :p

32. Ertu í góðu skapi?
- Já já

33. Hvað ertu að fara að gera núna um helgina?
-Það er ekkert ákveðið, enda langt í hana, ég er allavega að fara að vinna ...

34. Ertu að tala við einhvern á meðan þú ert að þessu?
- já bara Elís svona af og til..

35. Hvenær hefuru verið mest döpur í gegnum líf þitt?..
- Uu... hvurslags spurning... ég veit það ekki

36. áttu fleiri en einn gsm síma?
- Nei tilhvers ??

37. notaru Ebay ?
- Já hef gert það einstaka sinnum, skoða samt oft eitthvað þarna  og læt mig dreyma um fallega kjóla eða eitthvað :D

38. Hvað gerir þig reiða?
- mikið

39. Hefur einhvertíma verið samið lag um þig?
- Já eða allavega til mín.. Kallinn minn er svo mikill dúlli!!:*

40. Hefuru einhvertíma sungið á almannafæri?
- Já.. Ég er í kór :p

41. Hvaða lag gerir þig ánægða?
- Bright lights sem Elís samdi handa mér...:*

42. Á hvað hlustaru áður en þú ferð að sofa?
- Sjónvarpið

43. Ertu í vinnu?
- Já í N1..:)

44. Hvað er inná iPodinu þínum ?
- Búin að týna honum...

45. Hve marga nána vini áttu?
-Ég á nokkra æðislega vini !;*

46. Hvað gerir þig ánægða og glaða?
- Rosalega margt!

47. Ein ósk?
- Vera hamingjusöm

48. Hefur einhvertíma elskað einhvern en verið hrædd að segja manneskjunni frá því?
- Já!!

49. Næstu tónleikar?
- Ekki hugmynd!!

50. Nefndu eitt lag sem að á vel um líf þitt í dag ?
- Ekkert!


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 19:13:09 / bolabiturinn

2007-2008

Árið 2007. farið og kemur aldrei aftur. skrýtið.

Ég er komin heim frá Færeyjum, það var rosalega gott að vera þar.

Jólin mín voru rosalega skrítin, en æðisleg í alla staði ..
ég var hjá tengdó á aðfangadag með Ellu, Arnóri, Heimi og Elís og það var rosalega gaman:D Fékk ekkert smá mikið af æðislegum gjöfum og ég þakka fyrir mig ;*

á Jóladag fórum við Elís minn svo í mat til ömmuHeru og afa Stebba.

Annan í jólum borðuðum við hja mömmu og pabba .. og það var besti matur í heimi, Elís fékk að ráða og ákvað humar i forrétt og naut í aðalrétt... mmm ;)
27.des.lögðum við svo af stað til Rvk. Ég,Elís,Daði,Heimir og Arnór. Gistum hjá ömmu og afa: Rósu og Jóa.. ömmu&afa strákanna:p .. 28.flugum við svo til Færeyja.
þegar þangað var komið fengum við annan aðfangadag og svo var bara haft gaman.
Fórum ófáar ferðir í keilu, elska keilu, þó ég sökki!!
Svo fórum við bara út á lífið og höfðum það gott..
Fórum í skírn: Þorkell Árni Guðvarðsson Poulsen :) Hann er fallegasta barn í heimi!!!!!;*
Ekkert smá gott að komast í frí !! Alvöru frí.. Frí frá kjaftæðinu hér á Hú.:)
Áramótin voru mjög skemmtileg, frábært veður og geggjað útsýni:)
Svo komum við aftur á klakann 4.jan.

Árið 2007
Þetta ár var bæði slæmt og svo rosalega gott.. en maður á aldrei að minnast slæmu stundanna..
Ég vann roslaega mikið, var í miklum skóla, keypti mér íbúð, fór 2 til Færeyja, var með ástinni minni og öllum þeim sem mér þykir vænt um!!;*

Árið 2008:

Árið 2008 verður æðislegt:D
*Ég ætla að útskrifast úr Framhaldsskólanum á Húsavík næstu jól
*Ég ætla að fara til Danmerkur með Elís mínum í sumar til Bertu, Ragga og Hermanns V.
*Ég ætla að reyna að fara til Færeyja einhverntíman á þessu ári.
*Ég ætla að vinna mikið
*Ég ætla að ganga vel í skólanum.
*Ég ætla að reyna að klára íbúðina mína, kaupa stóran flatskjá,leðursófasett og lagfæra.
*Ég ætla að vera eins mikið og ég get með ástinni minni og vinum mínum´
*Ég ætla að láta mér líða vel
*Ég ætla að taka meiri þátt í félagslífi skólans
*Ég ætla að fara í einhverja líkamsþjálfun, hvort það verð Skokki eða bara út að hlaupa.

*og svo margt margt fleira...

En já ég ætla að segja þetta gott í bili... er að setja myndir inn.

Karolína

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  16  Alls: 25028
Klukkan
RSS tengill